more from
Mystískaos
We’ve updated our Terms of Use to reflect our new entity name and address. You can review the changes here.
We’ve updated our Terms of Use. You can review the changes here.

Dj​ö​flas​ý​ra

from The Feral Wisdom by Wormlust

/

lyrics

Það hefur tóm augu,
drekkandi ódáinsveigar,
veitandi sýnir.
Óhugnaðurinn, fegurðin - allt þetta gall.
Kjaftur þessi gleypir allt,
öllum sökkt er ofan í svaðið.
Ormétnir líkamar engjast um,
hér er vaðið er í gegnum öskuna.
Klökkar eru hendurnar,
líkkistur neglurnar,
engin handfesta finnst í kórónu keisarans.
Finn ég á þessari stundu hvernig grafir okkar snertast.

Hin dýrslega viska,
rekur í sundur sálir og magnar upp sáluhliðin,
helblóm spretta í augnatóftum þess.
Í höfði skepnunnar eru svartir salir,
niðamyrkir gígar,
ærandi víddir þjáninga.
Óteljandi.

Það rís úr hafinu ,
eins og krabbamein.
Jarðarfararsálmur sem er leikinn á innyfli,
sultarhljóð sem fyllir himindjúpin.
Án hugsunar.
Þungt gnæfir þessi draummynd yfir alheimnum,
sem skinnhvítt rekald.
Í hvítlogandi flæðarmáli stjarnanna,
andað inn sem myrkri.
Dragsúg tómleikans.
Sálnahirðir úr fjólubláum reyk,
sem með heljargreipum sínum fer um helgidóminn,
bakvið dánargrímu,
undir flogaveikum básunuþyt.

Sannleikans eilífa djúp,
þar er bæli dýrsins,
vitfirring kæfð í reyk.
Frýs blóðþyrst hjartað.
Opnast dauðans gin,

Hungurvofunnar slóð,
hún er kviðrist og köld,
hér hægist andardráttur,
sést frosin mánamóða.
Þúsund stjörnur loga,
undir dökku kufli.
Skarlatshjúp.
Umlykur dauðans myrkur.

Enni þess markað máttugum rúnum,
gullnir hlekkir glitra.
Fannhvítir faðmar vinda tannhjólin,
sligast undan klukknanna þunga hljóm,
beinanna klið.
Tungan er hljóð,
starir út í tómið og umritar ósagðar reglur.
Slæðingur þessi sameinast óminnishegranum.

Hugdettur um að vakna upp frá martröðinni,
hugmyndir um tilveru innan holds;
rifnar í sundur af hröfnum.

Formlaust,
Svífur sjálfið yfir vötnunum,
ferðast út úr helli ofskynjanna,
fyrst sem seiður.
Út í gegnum gimsteinalagt höfuðið.
Úr munni þess sem biturt tvíeggjað sverð,
með sex vængi alsetta augum;
sem vitnisburður.
Sem sneiðir í sundur glerhafið,
skilin á milli raunveruleika og martraða.
lastmæling sem stígur upp úr undirdjúpum vímunnar,
ferðast í gegnum víddir.
Frá holdi til spádómsorða sem kollvarpa hásætum.

credits

from The Feral Wisdom, released June 6, 2013

license

all rights reserved

tags

about

Wormlust Reykjavik, Iceland

Founded in 2006, Wormlust projects astral body horrors to the cosmos from Iceland.

contact / help

Contact Wormlust

Streaming and
Download help

Shipping and returns

Redeem code

Report this track or account

Wormlust recommends:

If you like Wormlust, you may also like: